Filed under: 1
Sorrí hvað ég er búinn að vera lengi að uppfæra. Tók hrylliega langan tíma að redda netinu í nýju íbúðina.
Flutti tveimur vikum eftir að ég kom til baka frá Íslandi. Alger sirkus að redda öllu sem þurfti að redda og ekkert gert auðvelt fyrir mann. Gríðarlega feginn að þetta sé búið og lífið byrjað að rúlla nokkuð eðlilega. Líka soldið feginn að vera ekki á Íslandi.
Eggert félagi kom í heimsókn nokkrum dögum eftir að ég flutti inn og það var gott. Yenið hafði reyndar aldrei verið jafn dýrt þannig að ytri aðstæður ekki alveg þær bestu. Góð ferð samt og mikið fjör að fá fólk í heimsókn.
Nú er svo skólinn farinn í gang og skemmtileg önn framundan. Svo kemur litla sys um jólin og það er gott. Set nokkrar myndir sem ég er búinn að stela héðan og þaðan. Útilega, bjórhátíð og random dót. Lofa svo öðru bloggi fyrr en seinna.
Myndir af íbúð koma seinna!
2 Comments so far
Leave a comment







Wúhú bara 2 mánuðir í þetta, can’t wait!
Comment by Guðbjörg October 20, 2008 @ 11:40 amHæ sæti, súrt að hafa ekki verið búin að koma fjármunum mínum í Svissneskan banka……sýningin sem mig langaði svo á er í næstu viku. Sjá:http://www.100percentdesign.jp/
Comment by Kristín Birna October 23, 2008 @ 10:49 amGet því miður ekki komist í þetta sinn en hver veit, ég skal að minnsta kosti komast til að heimsækja þig. Veistu um nokkurn sem VANTAR Landcruiser? Kv. KBB