Blogg frá Tokyo


Jólafrí 3
January 8, 2009, 10:45 am
Filed under: 1

Guðbjörg systir fór fyrir viku eftir gott tveggja vikna stopp.

Fékk svo hrotuskrímslið Eric í staðinn, stoppar í nokkra daga.

Nokkrar lokamyndir frá GUÐBJÖRG 2008-2009

Þakka kveðjur, gleðilegt ár og allt það!



Jólafrí 2
December 25, 2008, 12:55 pm
Filed under: 1

Fórum til Hakone og gistum á ljúfu ryokani. Fórum svo að stússast í Hakone þjóðgarðinum í fimbulkulda og roki, gott samt. Svo var jóladegi lokað með kvöldmat í Tokyo.

Fleiri myndir



Jólafrí
December 23, 2008, 12:58 am
Filed under: 1

Systir kom á laugardag. Það var hressandi. Búnir að vera stífir tveir dagar og Guðbjörg komin með blöðrur á allar tærnar.

Fórum í jólaboð hjá vinum Röggu vinkonu, hittum félaga mína sem voru í stuttu stoppi í Tokyo og fleira.

Svo er förinni heitið niðrá ströndina hjá Enoshima í dag og svo förum við upp til Hakone morgun og verðum á japönsku ryokani eina nótt.

Nokkrar myndir frá fyrstu tveimur dögunum. Meira seinna.



Helgi
November 24, 2008, 8:19 am
Filed under: 1

Fór í brúðkaup hjá belgískum skólafélaga mínum á laugardaginn. Gott partí og allir hressir. Soldið erfitt að vakna snemma daginn eftir en þá bauð Genta vinur í bíltúr.

Gott að komast aðeins úr borginni. Keyrðum í um tvo tíma upp í fjöll og kíktum í vinsælt japanskt baðhús. Á leiðinni heim var svo stoppað í sveitanúðlur. Nokkrar myndir.

20081123173951 image1381 image1401 image1361 image1391 image129



Jólakortablogg
November 18, 2008, 2:33 pm
Filed under: 1

Komnir tveir mánuðir í nýju íbúðinni og allt í gúddí. Húsgögnin týndust hægt og rólega inn og endaði á því að boðið var í smá sófa- og gólfpartí. Bækurnar mínar ekki lengur á gólfinu heldur, sem er gott.  Nú er bara að flísaleggja baðið og eldhúsið og koma flyglinum inn í setustofuna (djók, íbúðin er 18 fermetrar).

Hér er svo heimilisfangið:

Toshin Phoenix 308, Shinjuku-ku Nakamachi 34-2, 162-0835 Tokyo Japan.

Þeir sem senda jólakort fá allir japanskt nýárskort í staðinn , lofa!

Nokkrar myndir úr íbúðinni og hverfinu, let´s enjoying please!

img_4702 img_4724 img_4731 img_46971 img_4709 img_47141



Októberblogg
October 17, 2008, 12:38 pm
Filed under: 1

Sorrí hvað ég er búinn að vera lengi að uppfæra. Tók hrylliega langan tíma að redda netinu í nýju íbúðina.

Flutti tveimur vikum eftir að ég kom til baka frá Íslandi. Alger sirkus að redda öllu sem þurfti að redda og ekkert gert auðvelt fyrir mann. Gríðarlega feginn að þetta sé búið og lífið byrjað að rúlla nokkuð eðlilega. Líka soldið feginn að vera ekki á Íslandi.

Eggert félagi kom í heimsókn nokkrum dögum eftir að ég flutti inn og það var gott. Yenið hafði reyndar aldrei verið jafn dýrt þannig að ytri aðstæður ekki alveg þær bestu. Góð ferð samt og mikið fjör að fá fólk í heimsókn.

Nú er svo skólinn farinn í gang og skemmtileg önn framundan. Svo kemur litla sys um jólin og það er gott. Set nokkrar myndir sem ég er búinn að stela héðan og þaðan. Útilega, bjórhátíð og random dót. Lofa svo öðru bloggi fyrr en seinna.

Myndir af íbúð koma seinna!



Góður ágúst, betri september?
September 12, 2008, 10:26 am
Filed under: 1

Fór í brúðkaup hjá Röggu vinkonu og Hiroki í byrjun ágúst. Fékk að fara með í athöfnina í Meiji Jingu, Japanese style! Svo var partí daginn eftir sem stóð langt fram á nótt.

Svo fór ég heim til Ísland í ljúft þriggja vikna stopp. Borðaði pylsur, keyrði til Húsavíkur, fór í sund, tók þátt í handboltafárinu og fleira gott. Þakka öllum sem tóku þátt.

Fór svo í íslenska hlutann af brúðkaupi Röggu og Hiroki. Gaf þeim sjálfan mig í brúðkaupsgjöf, bý á gólfinu hjá þeim hér úti núna meðan ég býð eftir að flytja inn í nýju íbúðina. Orðinn ringlaður af skriffinsku og bulli. Næstum búið samt og þá kemur Eggert vinur í heimsókn. Verð vonandi kominn með húsgögn.



Sveheitt
July 22, 2008, 7:41 am
Filed under: 1

Rigningartímabilið búið en þrjátíu-plús tímabilið tekið við, ógeð.

Seinasti pappírinn þessa önnina alveg að klárast, gott að taka smá breik og skrifa boglogg. Kem svo heim í byrjun ágúst.

Fór á Star Wars ráðstefnu á laugardaginn með tveimur félögum, mikið fjör. Hittum fyrir Guðnýju Japana, sem komst meira að segja í blöðin. Stóð til að hitta Mark Hamill en það þurfti að borga pening til að hitta hann, þannig að við sögðum honum að fokka sér en hann heyrði það ekki. Svo var partí um kvöldið og karaókí fram á morgunn. Ekki mikið gert á sunnudaginn.

Þetta eru hausar úr The Vader Project, japanskir hönnuðir bættust í hóp þekktra hönnuða sem gerðu nýja Darth Vader hausa.



Technosuð
June 29, 2008, 7:33 am
Filed under: 1

Með suð í eyrunum sit ég og skrifa endalaust. Fór á technokvöld sem vinur minn stóð fyrir í gær á litlum klúbbi í Shibuya. Hef ekki verið með svona mikið suð eftir hörðustu rokktónleika.

Sat blaðamannanámskeið allan laugardaginn , það var fjör. Notaði tækifærið og tók nýju subway línuna sem var að opna í Tokyo. Ekkert merkilegt við það nema það að Tadao Ando hannaði endastöðina.  Tók nokkar myndir.

Þetta er líkan af stöðinni, Á víst að vera eins og egg í laginu en ég skil ekki hvernig egg Ando borðar.

Þetta er út í öðrum endanum. Hér panorama mynd sem einhver gaur tók.

Svo er víst búið að taka fyrstu skóflustunguna að nýjum Tokyo turni, hryllilegt rusl í miðri borginni. Ando er að gera það líka, ekki að digga það.



Miðannarstuð
June 12, 2008, 1:22 pm
Filed under: 1

Mesta miðannarstuðinu lokið í skólanum , lauk seinasta fyrirlestrinum mínum í dag og fékk svo ritgerð í fésið að honum loknum.

Flestir örugglega frétt af viðbjóðnum í Akihabara um daginn, ekkert annað í sjónvarpinu hér núna. Verið að taka viðtöl við foreldra gaursins og vinnufélaga. “ja, hann var bara svona venjulegur gaur…”. Reyna að kenna tölvuleikjum og teiknimyndum um, væri réttara að benda á aðra hluti sem eru misgóðir í Japan.

Fór annars á boxkvöld um daginn að sjá gaur úr boxgymminu mínu slást. Rotaði gaurinn í annarri lotu. Gott gymm!

Svo er það Kit Kat Mango, blowing my mind right now!




Follow

Get every new post delivered to your Inbox.